BOM er merki systranna og upphafsstafir i nöfnum þeirra
Bryndísar ogOddrúnar Magnúsdætra og undir þessu merki hanna þær silfurskartgripi
sem seldir eru í Sirku.
Þær Oddrún og Bryndis bjuggu í mörg ár í Flórens á Ítalíu og lögðu þar stund á listnám. Fyrst við Fuji Studio 1990-1992 og síðan Le Arte Orafo á árunum 1992-1994. Einnig hafa þær sótt námskeið hjá Listnám.is. Þær vinna skartgripi sína að mestu úr silfurleir með blandaðri tækni. Allir skartgripirnir eru nikkelfríir.Í Flórens heilluðust þær líka af mósaík listinni og lögðu stund á hana við Perseo árið 1996.
Árið 1999 stofnuðu þær Gallerí Skrautlu á Akureyri ásamt frænku sinni Margréti Jónsdóttur leirlistarkonu og ráku það til ársins 2004. Oddrún og Bryndis hafa haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Silfursmíði þeirra er hægt að nálgast í versluninni Sirku en Mósaíkverk þeirra í Listfléttunni, Hafnarstræti á Akureyri.



