"Ég heiti Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og hef ómælda þörf á
að skreyta allt mögulegt og ómögulegt. Ég hef búið á ýmsum stöðum um dagana. Ég fæddist
í Vestmannaeyjum en eyddi bernsku og unglingsárum í Laugarnesinu í Reykjavík. Ég lærði textíl í Osló og og
síðar textílforvörslu í London. Nú bý ég í Svarfaðardal og þar er ég með litla vinnustofu.
Ég vinn á Dalvík sem safnstjóri byggðasafnsins þar og þegar ég er ekki að hanna og breyta sýningum safnsins auk alls annars sem safnastarfið krefur þá vinn ég í textíl og skreyti með perlum, tölum, steinum, glerflísum, bútum og öllu mögulegu öðru. Ég tel að flækingur minn í gegn um tíðina og dvöl í ólíku umhverfi hafi átt mestan þátt í að móta mig sem skreytilistakonu.
Ég sel munina sem ég bý
til í Listasafni Íslands og í Sirku á Akureyri. Ég hef tekið þátt í nokkrum sýningum Handverks og hönnunar"



