Sirka fersk og frumleg verslun

Sæunn er fædd  í Reykjavík og uppalin í Noregi og Skógum undir Eyjafjöllum. Árið 1993 útskrifaðist hún  úr textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands

Sæunn Þorsteinsdóttir

Sæunn er fædd  í Reykjavík og uppalin í Noregi og Skógum undir Eyjafjöllum. Árið 1993 útskrifaðist hún  úr textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands með teikningu og málun sem valfög.

Sæunn hefur unnið ýmis störf tengd listum og hönnun, kennt mynd-, textíl- og tónmennt og verið safnvörður. Hún býr nú í Mosfellssveit og vinnur að myndlist og hönnun.

Pappír og pappírsgerð hefur alltaf verið mikilvægur hluti af verkum Sæunnar, og hún hendir helst ekki pappír (a.m.k. ekki ef hann er fallegur). Skartgripir og óróar verða til úr ýmis konar afgangspappír, perlum, steinum og öðru skrauti. Festar úr gömlum landakortum kallar hún Landfestar, enda eru perlurnar búnar til úr íslenskum landshlutum. Landfuglarnir svífa um með jökulvængi, fosshálsa og fjallastél.


 

Karfa

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf